Framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar hættur

mbl.is

Starfsfólki Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum var tilkynnt á fundi í morgun að Atli Georg Árnason, framkvæmdastjóri verksmiðjunnar, hafi látið af störfum. Starfsfólki var sagt að reksturverksmiðjunnar yrði óbreyttr og starf framkvæmdastjóra auglýst eins fljótt og kostur er. Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.

Þangað til mun Þorgeir Samúelsson framleiðslustjóri sjá um daglegan rekstur.  Bandarískt fyrirtæki á 60% hlut í verksmiðjunni en Byggðastofnun á langstærsta hlutann þar á móti.

Magnús Helgason er fulltrúi Byggðstofnunar í stjórn verksmiðjunnar. Hann sagðist í samtali við Skessuhorn ekki geta tjáð sig um brotthvarf framkvæmdastjórans að öðru leyti en því að hann hafi látið af störfum.

Sjá nánar á vef Skessuhorns

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK