Krónan ekki veikari í rúmt ár
Gengi krónunnar hefur lækkað nokkuð á síðustu dögum og hefur hún ekki verið jafn veik gagnvart helstu viðskiptamyntum síðan í lok maí á síðasta ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka.
Stendur gengisvísitala krónunnar í 219 stigum og er krónan þar með rúmlega 5% veikari en hún var um síðustu áramót. Á sama tímabili í fyrra var þessu öfugt farið en þá styrktist krónan um rúm 8% miðað við gengisvísitöluna, þ.e. fór úr rúmum 233 stigum í tæp 216 stig.
Veiking krónu gagnvart evru 7% frá áramótum
„Að hluta til má rekja þessa þróun á veikingu á gengi evrunnar á þessum tíma en svo virðist sem máttur krónunnar sé fremur lítill um þessar mundir og þar með að krónan sé sjálf undir töluverðum lækkunarþrýstingi.
Evran sem vegur rúmlega 40% gengisvísitölunnar kostar nú um rétt rúmar 166 krónur á innlendum millibankamarkaði en um síðustu áramót var evran á um 153 krónur.
Jafngildir þetta að gengi krónunnar hafi veikst um rúmlega 7% gagnvart evrunni frá ármótum. Svipaða sögu er að segja um gengi krónunnar gagnvart breska pundinu sem kostar nú um 189 krónur á innlendum millibankamarkaði.
Um síðustu áramót var pundið á tæpar 180 krónur og jafngildir þetta að krónan hafi veikst um tæp 5% gagnvart pundinu á tímabilinu. Hvað Bandaríkjadollar varðar þá er hann á svipuðu verði og hann var á um síðustu áramót, þ.e. á um 116 krónur," segir í Morgunkorni Íslandsbanka.



















