Viðskipti
| Morgunblaðið
| 30.6.2011
| 5:30
Hægt að loka skrifstofunni
Vilhjálmur Bjarnason, stjórnarmaður í Samtökum stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði, segir að ef Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms í Exeter-málinu svokallaða geti sérstakur saksóknari þess vegna lokað skrifstofunni.
„Saksóknari vann sína vinnu mjög vel að mínu mati og málið er einfalt. Ef þessi fráleita niðurstaða verður staðfest þá er borin von að hægt sé að ákæra menn í flóknari málum, til dæmis þeim sem tengjast Glitni,“ segir Vilhjálmur.
Meirihluti héraðsdóms sýknaði í gær Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Byrs, og Jón Þorstein Jónsson, fyrrverandi stjórnarformann sjóðsins, af öllum liðum ákæru í Exeter-málinu, en einn dómari vildi sakfella þá. Þá var Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi bankastjóri MP banka, sýknaður.Bótakröfu Byrs á hendur þremenningunum var vísað frá dómi sem opnar fyrir það að höfðað verði einkamál gegn þeim. Í umfjöllun um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag segir Vilhjálmur hins vegar að það sé undir skilanefnd Byrs komið, því stofnfjáreigendur megi það ekki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















