Greiningardeild Arion banka telur að lífeyrissjóðir landsins hafi verið stærstu kaupendur í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands sem lauk fyrr í vikunni.
Umframeftirspurn var í útboðinu en tekið var tilboðum fyrir 61,7 milljónir evra (13 milljarða króna) en heildartilboð námu um 71,8 milljónum evra.
Seðlabankinn bauðst í útboðinu til að kaupa gjaldeyri fyrir krónur í formi langs verðtryggðs ríkisskuldabréfs (binditími 5 ár) sem fellur vel að fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna, segir í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.
Seðlabankinn hefur horft til erlendra eigna lífeyrissjóðanna sem hluta af lausninni á umtöluðum aflandskrónuvanda, segir í Markaðspunktum.
„Erlendir fjárfestar sem hafa verið í fjárfestingum hér á landi hafa haft lítinn áhuga á löngum verðtryggðum ríkisbréfum enn sem komið er og því ólíklegt að þeir hafi verið umsvifamiklir þáttakendur í þessu útboði. Ef framhald verður á útboðunum má spyrja sig hvort það sé æskilegt og eðlilegt að lífeyrissjóðirnir noti erlendar eignir sínar til að losa um aðþrengda fjárfesta," segir í Markaðspunktum.