Viðskipti
| AFP
| 30.6.2011
| 9:59
Olíuverð lækkar á ný
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í morgun í kjölfar þess að fjárfestar innleystu hagnað vegna hækkunar í gær.
Verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í ágúst lækkaði um 1,01 Bandaríkjadal tunnan í Lundúnum í morgun og kostar tunnan nú 111,39 dali. Í gær hækkaði verð á Norðursjávarolíu um 3,62 dali í gær.
Í New York hefur verð á tunnu lækkað um 37 sent í morgun og er 94,40 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















