Viðskipti
| AFP
| 30.6.2011
| 8:32
Risasamningur í bígerð
Bandaríska flugfélagið American Airlines á í viðræðum við flugvélaframleiðendur, bæði Airbus og Boeing, um kaup á 250 þotum hið minnsta. Um er að ræða samning upp á 15 milljarða Bandaríkjadala, 1.728 milljarða króna. Greint er frá þessu í bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal í dag.
Með kaupunum mun American Airlines endurnýja 38% af flugflota sínum. Samkvæmt WSJ gæti það haft miklar breytingar í för með sér semji flugfélagið við Airbus þar sem Boeing hefur nánast verið með einokunarstöðu á bandarískum markaði hingað til.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















