Viðskipti
| AFP
| 1.7.2011
| 7:10
Verðlækkun á olíu
Verð á hráolíu lækkaði í Asíu í nótt en fjárfestar innleysa nú hagnað vegna verðhækkunar á olíumörkuðum undanfarna daga. Jafnframt hefur lækkun á gengi Bandaríkjadals áhrif sem og létti meðal fjárfesta vegna stöðu mála í Grikklandi.
Í New York hefur verð á hráolíu lækkað um 80 sent tunnan og er 94,62 dalir.
Í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu lækkað um 81 sent og er 111,67 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















