Grísk lánalenging er greiðslufall
Nær stöðug mótmæli hafa verið í Grikklandi síðustu daga og vikur vegna niðurskurðaráforma grísku ríkisstjórnarinnar. Reuters
Áætlun franskra og þýskra banka um að lengja í grískum ríkisskuldabréfum er í uppnámi eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor’s sagðist myndu líta á slíka lánalengingu sem greiðslufall af hálfu gríska ríkisins.
Þessi endurfjármögnunaráætlun var háð því að matsfyrirtækin myndu ekki lækka einkunnir sínar, en S&P sagðist í morgun líta á hana sem neyðaraðgerð sem leiða myndi til lækkunar á lánshæfiseinkunn. Gríska fjármálaráðuneytið hefur ekki enn svarað sendingu S&P.
Annað matsfyrirtæki, Fitch Ratings, sagði í nýlegu bréfi til breska blaðsins Financial times, að „ef þetta lítur út eins og greiðslufall munum við gefa því einkunn eins og ef um greiðslufall er að ræða.“
Evrópusambandið varaði um helgina við því að gríska hagkerfið muni dragast saman um ein 3,75 prósent í ár. Evrópskir fjármálaráðherrar samþykktu á laugardaginn 8,7 milljarða evru lán til Grikklands, sem þýðir að gríska ríkið mun geta staðið við skuldbindingar sínar í júlí.
Yfirlýsing S&P hefur líklega stöðvað endurfjármögnunaráætlanirnar í núverandi mynd, að mati Financial Times.



















