Viðskipti
| AFP
| 5.7.2011
| 20:11
Vístölur lækkuðu og hækkuðu
Það gekk á ýmsu á verðbréfamörkuðum í Bandaríkjunm í dag en lækkanir voru þó mest áberandi. Dow Jones vísitalan lækkaði um 0,1%, S&P 500 um 0,12% en Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,36%.
Markaðir í Bandaríkjunmu voru lokaðir í gær vegna þjóðhátíðardagsins. Síðastliðin viðskiptavika var sú besta á Wall Street á undanförnum tveimur árum. Dow Jones vísitalan hækkaði um 5,4% í síðustu viku.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















