Bréf BSkyB lækka
Hlutabréf breska sjónvarpsfélagsins British Sky Broadcasting (BSkyB) hafa lækkað um 7,3% í kauphöllinni í Lundúnum í morgun en vaxandi efasemdir eru um að News Corp., félag Rupers Murdochs, fái að kaupa meirihluta í BSkyB.
Gengi bréfanna var 695 pens í morgun og hefur lækkað um rúmlega 18% á einni viku.
Breskur aðstoðarráðherra, sem hefur fjallað um yfirtökutilboð News Corp. í BSkyB, sagðist í dag myndi leita ráðgjafar frá annarri stofnun um hvort símhleranahneykslið hjá blaðinu News of the World veki upp spurningar um hvort News Corp. sé hæft til að fá sjónvarpsleyfi. News of the World var lagt niður um helgina en það var í eigu News Corp.
News Corp. á 39% í BSkyB. Rupert Murdoch, eigandi News Corp., kom til Lundúna í gær til að stýra viðbrögðum fyrirtækisins við símahlerunarhneykslinu.




















