Viðskipti
| AFP
| 13.7.2011
| 14:08
| Uppfært
14.7.2011
7:11
Hættir við BSkyB yfirtöku
Fjölmiðlafyrirtæki Ruperts Murdoch, News corp., er hætt við yfirtöku á bresku sjónvarpsveitunni BSkyB. News corp á 39% hlut í BSkyB og hafði félagið óskað eftir því að fá að yfirtaka félagið.
Fyrirætlun Murdoch hefur verið harðlega gagnrýnd að undanförnu af breskum stjórnmálamönnum einkum og sér í lagi eftir að ljós hefur komið að fjölmiðlar í eigu News hafa beitt ólöglegum aðferðum við að afla upplýsinga um einkalíf fólks.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fagnar ákvörðun News um að hætta við yfirtökuna og segir að Murdoch eigi að einbeita sér að því að koma á röð og reglu í félögum í hans eigu.Í tilkynningu sem News sendi frá sér kemur fram að félagið muni eftir sem áður áfram eiga 39% hlut í BSkyB.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















