Íslandsbanki eignast Byr

Íslandsbanki mun leggja Byr til nýtt hlutafé.
Íslandsbanki mun leggja Byr til nýtt hlutafé. mbl.is/Eggert

Stjórn Byrs hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við Íslandsbanka um útgáfu nýs hlutafjár og hafa fyrirtækin undirritað samkomulag þess efnis.  Einnig hefur verið gert samkomulag við slitastjórn Byrs sparisjóðs og fjármálaráðuneytið sem selja Íslandsbanka allt hlutafé sitt í Byr og er gert ráð fyrir að í kjölfarið verði starfsemi Íslandsbanka og Byrs sameinuð undir merkjum Íslandsbanka.

Sameiningin er háð samþykki Samkeppniseftirlits og Fjármálaeftirlits og verður starfsemi fyrirtækjanna óbreytt á meðan samþykkis er beðið.

Á næstu vikum munu starfsmenn Íslandsbanka og Byrs hefja undirbúning að útfærslu á sameiningu fyrirtækjanna.  Segir í tilkynningu, að í þeirri vinnu verði sjónarmið og hagsmunir viðskiptavina, starfsmanna, eigenda og eftirlitsaðila í fyrirrúmi.

Það sé mat stjórnenda Byrs og Íslandsbanka, að með sameiningu fyrirtækjanna náist fram mikilvæg hagræðing á íslenskum fjármálamarkaði og að sameinað fyrirtæki verði vel í stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum faglega og persónulega þjónustu. Sameinaður banki verði með breiðan og sterkan hóp viðskiptavina, starfsmanna og öflugt net útibúa til að þjóna þeim.  Að auki verði sameinaður banki með afar sterkt eiginfjárhlutfall, eða vel yfir 16% lágmarkskröfum FME.

Í fréttatilkynningunni er haft eftir Jóni Finnbogasyni, forstjóra Byrs, að hann sé mjög ánægður með þessa niðurstöðu sem fengist hafi úr því söluferli sem staðið hafi yfir undanfarnar vikur.

„Við erum sannfærð um að til verður öflugt fjármálafyrirtæki sem getur þjónað betur þörfum viðskiptavina með hagkvæmara og dreifðara útibúaneti, víðtækara lausnaframboði og persónulegri þjónustu, en allt þetta leiðir til þess að viðskiptavinir sameinaðs fyrirtækis munu njóta framúrskarandi þjónustu.

Íslandsbanki hefur verið í fararbroddi með lausnir fyrir viðskiptavini og hefur í krafti stærðar sinnar og stöðu getað gengið lengra en við hjá Byr.  Við erum því sannfærð um að viðskiptavinir Byrs muni njóta góðs af þeim skrefum sem nú hafa verið stigin,“ segir Jón.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka segir um sameininguna: „Þessi niðurstaða er mikilvægur áfangi í uppbyggingu  fjármálakerfisins og ljóst að með sameiningunni verður til eitt öflugasta fyrirtæki landsins í fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við hjá Íslandsbanka hlökkum til að starfa með stjórnendum og starfsfólki Byrs að því að skapa sterka og öfluga heild. Í sameiningu munum við áfram leggja áherslu á að sinna viðskiptavinum Byrs og Íslandsbanka með framúrskarandi þjónustu.  Starfsfólk Byrs og Íslandsbanka hefur staðið sig afar vel í varnarbaráttu síðustu ára og hefur byggt upp traust sambönd við viðskiptavini sína. Það er lykilatriði að viðhalda því trausti með  persónulegri  og faglegri þjónustu sem hefur einmitt verið aðalsmerki þessara tveggja banka.  Sameinaður banki verður í enn sterkari stöðu til þess að treysta undirstöður atvinnulífs og þjóna heimilum í landinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK