Spá verðhjöðnun í júlí
Greiningardeild Arion banka spáir 0,2% verðhjöðnun í júlí, þ.e. 0,2% lækkun á vísitölu neysluverðs (VNV). Gangi spá deildarinnar eftir mun ársverðbólgan mælast 4,7% samanborið við 4,2% í júní.
Lækkun þessi á verðlagi má fyrst og fremst rekja til tímabundinna áhrifa frá sumarútsölum sem koma nú fram af fullum þunga í þessum mánuði.
Á hinn bóginn mun hækkun eldsneytisverðs, húsnæðisliðar og launa (áhrif kjarasamninga) hafa áhrif til hækkunar.
„Síðustu árin hafa sumarútsölur lækkað verðlag um 0,5-0,7% í júlí. Sterk útsöluáhrif komu fram á sama tíma í fyrra en á þeim tíma var gengi krónunnar að styrkjast. Öfugt er upp á teninginn nú þar sem krónan hefur veikst að undanförnu og gerum við því ráð fyrir að útsölur verði í lakari kantinum þetta árið," segir í skýrslu Greiningardeildar.



















