Murdoch segir News Corp. hafi brugðist rétt við
Rupert Murdoch segir í viðtali við bandaríska viðskiptablaðið Wall Street Journal, að News Corp., eignarhaldsfélag hans, hafi brugðist afar vel við því ástandi, sem hefur skapast innan fyrirtækisins vegna símhlerunarhneykslisins í Bretlandi.
Murdoch segir í viðtalinu að fyrirtækið muni ná sér aftur á strik. Hann segist ætla að setja á stofn óháða nefnd til að rannsaka allar ásakanir, sem komið hafa fram um að fjölmiðlar á vegum News Corp. hafi brotið lög eða siðareglur.
News International, útgáfufélag News Corp. í Bretlandi, lagði blaðið News of the World niður um síðustu helgi. Murdoch segir í viðtalinu að fyrirtækið muni ná fyrri stöðu sinni aftur í Bretlandi enda hafi það unnið mikið gagn þar í landi.
Þá segir Murdoch, að fyrirtækið hafi brugðist með ágætum við því ástandi, sem skapast hefur vegna upplýsinga um að News of the World og hugsanlega fleiri blöð News International hafi beitt ólöglegum aðferðum við fréttaöflun.
Murdoch segir einnig, að James sonur hans, sem er aðstoðarforstjóri News Corp. og stjórnarformaður News International, hafi brugðist hratt og rétt við. Hann vísar á bug fréttum um að hann íhugi að selja einhver af blöðum sínum.
„Alger þvæla," segir hann um þetta.
News Corp. á Wall Street Journal.





















