Hver býður gegn Walker í Iceland?
Fjárfestingabankamenn sem vinna fyrir skilanefnd Landsbankans reyna að fá sem mest út úr sölunni á 67% hlutnum í Iceland Foods, að sögn Daily Telegraph. Blaðið segir eignarhlutinn það bitastæðasta í eignasafni fallna bankans.
Richard Fletcher blaðamaður skrifar greinina sem birtist á fréttavef The Telegraph í gærkvöldi. Hann segir fátt annað í eignasafni bankans vera jafnvirði þeirra 1,8 milljarða punda (341 milljarður ÍKR) sem sé verðmiðinn á eignarhlutnum í matvælarisanum.
Það eigi sannarlega ekki við um eignarhluta í Hamleys eða House of Fraser sem bankinn hafi fengið í arf frá hinu fallna fjárfestingafélagi Baugi.
Baugur fær raunar ekki háa einkunn hjá blaðamanninum. Hann segir að þótt rætt hafi verið um fyrirtækið sem víkinga á sínum tíma þá hafi raunveruleikinn verið mun hversdagslegri. Það hafi keypt ofmetnar eignir með peningum annarra.
Hjá Baugi hafi skort heildarsýn og þeir ekki verið neinir snillingar í fjárfestingum. Fyrirtækið hafi m.a. borgað of mikið fyrir Hamleys í slagnum við Tim Waterstone. Fjárfestingin í Iceland hafi verið ein af fáum undantekningum.
Baugur hafi farið í samstarf við Malcolm Walker, stofnanda Iceland sem var ýtt út úr fyrirtækinu vegna deilna um sölu hlutabréfa. Fyrirtækið var svo tekið af markaði 2005.
Veltan og hagnaðurinn stórjókst þegar Walker tók aftur við stjórninni. Tekjurnar tífölduðist á síðustu sex árum úr 20 milljónum punda (3,8 milljarðar ÍKR) í 200 milljónir punda (380 milljarða ÍKR).
Blaðamaðurinn telur að samkomulag á milli hluthafa í Iceland geti flækst fyrir við söluna á eignarhlut Landsbankans. Landsbankinn getur þvingað Walker og stjórnendateymi hans til að selja rúmlega 20% hlut sinn hverjum þeim sem kaupir hlut bankans.
Þar á móti kemur að Walker og teymi hans á rétt á að ganga inn í tilboð í eignarhlut Landsbankans. Walker geti því beðið rólegur og séð hvort einhver sé reiðubúinn að bjóða 1,8 milljarða punda (341 milljarð ÍKR) í eignarhluta bankans - það sé nokkuð metnaðarfullt verðmat Landsbankans og ráðgjafa hans.





















