Viðskipti
| AFP
| 21.7.2011
| 20:45
Hagnaður Microsoft 23,15 milljarðar dala
Bandaríska tæknifyrirtækið Microsoft hagnaðist um 23,15 milljarða Bandaríkjadala, 2.710 milljarða íslenskra króna, á síðasta rekstrarári sem lauk þann 30. júní sl.
Námu tekjur Microsoft Corp. 69,94 milljörðum dala á rekstrarárinu sem er 12% aukning frá fyrra ári. Hafa tekjur félagsins aldrei verið jafn miklar á einu ári í sögu þess.
Á fjórða ársfjórðungi rekstrarársins námu tekjur Microsoft 17,37 milljarðar dala sem eru mestu tekjur Microsoft á þriggja mánaða tímabili. Hagnaður í fjórðungnum nam 5,87 milljörðum dala.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















