Samið um gjaldmiðlavarnarsamninga
Náðst hefur rammasamkomulag milli fulltrúa Landssamtaka lífeyrissjóða og skilanefndar Landsbanka Íslands hf. um fullnaðaruppgjör framvirkra gjaldmiðlavarnarsamninga, sem 13 lífeyrissjóðir gerðu við Landsbankann.
Fram kemur í tilkynningu frá Landssamtökum lífeyrissjóða, að allt frá bankahruninu haustið 2008 hafi átt sér stað viðræður milli fulltrúa þrettán lífeyrissjóða og skilanefndar Landsbanka Íslands um stöðu framvirkra gjaldmiðlavarnarsamninga sjóðanna við bankann og forsendur fyrir mögulegri sátt um uppgjör þeirra.
Niðurstaða samkomulagsins er að mestu í samræmi við stöðu samninganna í ársreikningum lífeyrissjóðanna. Segir landssambandið, að samkomulagið muni því ekki hafa áhrif á tryggingafræðilega stöðu sjóðanna.
Í kjölfar samkomulagsins verður hægt að ljúka uppgjöri milli Landsbanka Íslands og einstakra lífeyrissjóða.



















