Viðskipti
| AFP
| 22.7.2011
| 10:23
Hagnaður CaixaBank 833 milljónir evra
Hagnaður spænska bankans, CaixaBank, nam 833 milljónum evra, 138 milljörðum króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Er það 11% aukning milli ára.
Hlutabréf Caixa bankans hafa hækkað um 4,10% það sem af er degi í kauphöllinni í Madrid eftir að afkoma hans var kynnt í morgun.
Á öðrum ársfjórðungi nam hagnaður bankans 533 milljónum evra, sem er 57% aukning á milli ára.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















