Viðskipti
| mbl
| 28.7.2011
| 9:57
Hagnaður Shell eykst mikið
Hagnaður ensk-hollenska olíufélagsins Royal Dutch Shell, stærsta olíufélags Evrópu, nam 8,66 milljörðum dala, 995 milljörðum króna, á öðrum fjórðungi ársins og nærri tvöfaldaðist frá sama tímabili í fyrra. Þá var hagnaðurinn 4,39 milljarðar dala.
Ástæðurnar fyrir því að hagnaðurinn jókst eru einkum hækkandi olíuverð og söluhagnaður.
Þótt Shell hafi fjárfest mikið í nýjum verkefnum dróst olíuframleiðsla saman um 2% milli ára og nam 3,05 milljónum tunna á dag að jafnaði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















