Actavis tapaði einkaleyfamáli
Áfrýjunardómstóll í Indianapolis í Bandaríkjunum hefur fellt úr gildi úrskurð undirréttar um að einkaleyfi lyfjaframleiðandans Eli Lilly á ofvirkislyfi væri fallið úr gildi. Íslenska lyfjafyrirtækið Actavis var tilbúið með samheitalyf félli einkaleyfið úr gildi.
Áfrýjunardómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að einkaleyfi Eli Lilly fyrir lyfið Strattera gildi til maí 2017.
Undirréttur í New Jersey dæmdi fyrir ári, að einkaleyfið væri fallið úr gildi. Eli Lilly sagði, að ef framleidd yrðu samheitalyf myndi það hafa veruleg áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
Bandaríska lyfjaeftirlitið samþykkti samheitalyf Actavis í september sl. en það lyf var ekki sett á markað vegna dómsmálsins.
Strattera kom á markað í maí 2008 og seldist fyrir 576,7 milljónir dala á síðasta ári, jafnvirði 67 milljarða króna.



















