Hluthafar Cimber Sterling fallast á yfirtökutilboð
Hluthafar danska lággjaldaflugfélagsins Cimber Sterling hafa fallist á að úkraínski auðkýfingurinn Ígor Kolomoyskí, yfirtaki flugfélagið.
Á hluthafafundi samþykktu 97,7% hluthafa að fyrirtækið Mansvell keypti 70% af hlutafé félagsins fyrir 167,75 milljónir danskra króna, rúma 3,7 milljarða íslenskra króna.
Cimber Sterling, sem keypti m.a. flugvélar úr þrotabúi flugfélagsins Sterling á sínum tíma, hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum síðustu misserin. Fram kemur á vef blaðsins Børsen, að eigið fé félagsins sé neikvætt og ógreiddir reikningar nemi um 100 milljónum danskra króna.
Talið er líklegt, að rekstur Cimber verði með einhverjum hætti sameinaður sænsku flugfélögunum Skyways og City Airline, sem einnig eru í eigu Mansvell.
Fyrr í dag kom fram, að skipt verði um helstu stjórnendur hjá Cimber. Muni Jacob Krogsgaard, forstjóri, Stefan Vilner, markaðsstjóri, Signe Thorup, upplýsingafulltrúi og Steen Neuchs, fjármálastjóri, hætta störfum.
Flugfélagið er með höfuðstöðvar í Sønderborg syðst á Jótlandi. Félagið
hét áður Cimber Air en keypti hluta af rekstri og flugvélar af þrotabúi
lággjaldafélagsins Sterling árið 2009 og breytti í kjölfarið nafninu
í Cimber Sterling. Bréf félagsins voru skráð á markað undir lok ársins 2009 en hafa ekki reynst góð fjárfesting.



















