Skipt um stjórnarmann í Iceland
Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Baugs Group í Bretlandi, hefur vikið úr stjórn verslunarkeðjunnar Iceland Food, sem Landsbankinn á meirihluta í.
Að sögn breska blaðsins Sunday Telegraph hefur Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, tekið sæti Gunnars í stjórninni.
Skilanefnd Landsbankans tilkynnti fyrr á árinu, að hún ætlaði að selja 67% hlut bankans og segir Telegraph, að bankinn vilji nú styrkja stöðu sína í stjórn félagsins. Gert sé ráð fyrir því, að hugsanlegir kaupendur að hlut bankans fái gögn í hendur eftir um það bil einn og hálfan mánuð.
Landsbankinn fól fyrirtækjunum Ernst & Young og Linklaters að undirbúa söluna. Segir Telegraph, að skýrsla fyrirtækjanna um rekstur og stöðu Iceland verði uppistaða þeirra gagna, sem hugsanlegir kaupendur fái í hendur.
UBS og Bank of America Merrill Lynch munu síðan sjá um söluna sjálfa. Telegraph segir að það flæki málið, að Malcolm Walker, stofnandi Iceland og núverandi forstjóri, hafi í hyggju að bjóða í hlut bankans en hann á 23% hlut í Iceland. Walker hefur falið fjárfestingarbankanum Rothschild að finna bakhjarla fyrir tilboð sitt.
Meðal þeirra fyrirtækja, sem hafa lýst áhuga á að kaupa hlut Landsbankans í Iceland eru verslunarkeðjurnar Wm Morrison og J. Sainsbury en samkeppnislög kunna að hindra að þau fyrirtæki kaupi allan hlutinn. Áætlað er að Landsbankinn geti selt eignarhlut sinn á 1,2 milljarða punda, jafnvirði nærri 230 milljarða króna.



















