Viðskipti
| mbl
| 2.8.2011
| 8:25
Toyota hækkar afkomuspá
Hagnaður af rekstri japanska bílaframleiðandans Toyota Motor Corp. nam 1,1 milljarði jena, 1,65 milljörðum króna, á síðasta ársfjórðungi samanborið við 190 milljarða jena hagnað á sama tímabili í fyrra.
Náttúruhamfarirnar í mars höfðu mikil áhrif á starfsemi Toyota eins og annarra japanskra stórfyrirtækja. Sölutekjur drógust m.a. saman um 29% milli ára á ársfjórðungnum og námu 3,44 billjónum jena nú.
En Toyota segir, að sala hafi haldist stöðug í Asíu og hefur nú hækkað afkomuspá fyrir rekstrarárið í heild en því lýkur í mars 2012.
Toyota áætlar nú að hagnaður verði 390 milljarðar jena á árinu og að sölutekjur verði 19 billjónir jena en síðasta spá félagsins gerði ráð fyrir 280 milljarða hagnaði og 18,6 billjóna jena sölutekjum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















