Enn afgangur af vöruskiptum
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,9 milljarða króna og inn fyrir 43,1 milljarð króna fob (46,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,8 milljarða króna. Í júní 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,7 milljarða króna á sama gengi.
Fyrstu sex mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 285 milljarða króna en inn fyrir 242,8 milljarða króna fob (261,5 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 42,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63,2 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.
Mest aukning í verðmæti áls og kísiljárns
Fyrstu sex mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 18,4 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.
Fyrstu sex mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 39,4 milljörðum eða 19,4% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og flutningatækjum en einnig varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvörum og neysluvörum.



















