Lækkunin heldur áfram
Lækkunin á hlutabréfamörkuðum hefur haldið áfram í nótt þar sem hlutabréf í Asíu fylgdu í fótspor þeirra bandarísku og evrópsku. Í Tókýó hefur Nikkei vísitalan lækkað um 3,4% það sem af er degi.
Í Suður-Kóreu nemur lækkunin 3% og í Hong Kong 4,4%. Í Sydney í Ástralíu hefur hlutabréfavísitalan lækkað um 3,9%.
Vara sérfræðingar við því að búast megi við lækkunum á mörkuðum í einhverjar vikur en fjárfestar óttast ástand mála á evru-svæðinu og Bandaríkjunum.
Á síðustu níu dögum hafa félögin fimm hundruð sem mynda S&P 500 vísitöluna í Bandaríkjunum tapað 1,37 billjónum (e. trillion) dala, af markaðsvirði sínu, samkvæmt frétt BBC.
Í Bretlandi hafa fyrirtækin 100 í FTSE vísitölunni tapað 160,9 milljörðum punda, DAX fyrirtækin í Frankfurt 85,5 milljörðum evra og þau 40 sem eru í CAC vísitölunni frönsku 13,6 milljörðum evra.



















