Viðskipti
| AFP
| 8.8.2011
| 13:31
DAX lækkar um rúm 3%
Helsta hlutabréfavísitala Þýskalands, DAX, hefur lækkað um 3,10% nú eftir hádegið og svipaða sögu er að segja af hlutabréfamarkaðnum í París. Viðskipti eru að hefjast á Wall Street og er talið að fyrstu tölur þaðan muni hafa mikil áhrif á þróun mála í Evrópu en hlutabréfavísitölur hafa sveiflast mikið í morgun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















