Moody's varar FIH við
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur sett danska bankann FIH Erhvervsbank á athugunarlista og segir að lánshæfiseinkunn bankans verði hugsanlega lækkuð í kjölfar gengishruns á hlutabréfum dönsku skartgripaverslunarkeðjunnar Pandoru.
Einkunn FIH er nú Ba2. Fram kemur í tilkynningu Moody's, að bankinn þurfi á tímabilinu frá ágúst 2012 til júní 2013 að endurfjármagna 50 milljarða danskra króna lán, sem hann fékk hjá danska ríkinu.
Moody's telur, að gengishrun hlutabréfa Pandoru og lækkun eigin fjár FIH sem því fylgdi, muni auka á erfiðleika bankans við að endurfjármagna skuldirnar.
Gengi bréfa Pandoru lækkaði um rúm 65% þann 2. ágúst. FIH tilkynnti daginn eftir, að bankinn hefði tapað 730 milljónum danskra króna á bréfunum frá því í apríl og eiginfjárhlutfallið, sem var 15,9% á fyrsta fjórðungi ársins, hefði lækkað um eina prósentu vegna þessa.
Moody's lækkaði lánshæfiseinkunn FIH í júní úr Ba1 í Ba2.



















