Viðskipti
| mbl
| 9.8.2011
| 15:42
| Uppfært
16:21
Taugatitringur á mörkuðum
Flestar hlutabréfavísitölur vestanhafs og í Evrópu hafa hækkað í dag eftir mikla lækkun í gær. Þrátt fyrir það er markaðurinn afar viðkvæmur en fundar bankastjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna síðar í dag er beðið með mikilli eftirvæntingu.
Það sem af er degi hefur Dow Jones vísitalan hækkað um 1,71%, S&P 500 um 2,21% og Nasdaq um 2,83%.
Í Lundúnum hefur FTSE vísitalan hækkað um 1,07%, CAC hefur hækkað í París um 0,80% en í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 0,88%.
Í Madríd hefur vísitalan lækkað um 1,02% og í Mílanó hefur hún lækkað um 0,30%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















