Hagnaður Icelandair 400 milljónir
Hagnaður Icelandair Group nam 400 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra nam tap félagsins 200 milljónum króna.
Heildarvelta var 25 milljarðar króna og jókst um 14% frá sama tíma í fyrra. Þegar tekið er tillit til félaga sem fóru út úr samstæðunni um síðustu áramót er veltuaukningin 21%, segir í tilkynningu frá Icelandair.
Rekstrarhagnaður var 2,1 milljarður króna og stóð í stað á milli ára en var af sambærilegum rekstri 1,9 milljarður króna.
Olíuverð var að meðaltali 47% hærra en á síðasta ári og kostnaðarhækkun vegna þessa metin á 1,7 milljarða króna. Afskriftir voru 1,5 milljarðar króna.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, Icelandair Group, segir í tilkynningu að sterkur innri vöxtur einkenndi annan ársfjórðung, en framboðsaukning í millilandaflugi félagsins nam 25% á milli ára. Farþegaaukning á sama tíma var 27%. Velta Loftleiða jókst um 28% og Flugfélag Íslands jók framboð sitt til Grænlands og nam farþegaaukningin á tímabilinu 14%. Þá opnaði samstæðan nýtt hótel á Akureyri.
„Hátt olíuverð, eldgos og aðgerðir vegna kjaradeilna voru áskoranir sem við þurftum að takast á við. Kostnaður og tekjutap vegna eldgossins er talið nema um 300 milljónum króna í fjórðungnum og yfirvinnubann flugmanna kostaði félagið sambærilega fjárhæð. Aðgerðir þeirra komu á versta tíma þar sem þjálfun nýrra flugmanna hafði seinkað vegna eldgossins.
Olíuverð var að meðaltali 47% hærra en á sama tíma í fyrra og kostnaðarhækkun vegna þess er um 1,7 milljarðar króna. Í ljósi þessa erum við mjög sátt við afkomu félagsins og ljóst að undirliggjandi rekstur er traustur. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk. Eiginfjárhlutfall er 29% og handbært fé og markaðsverðbréf í lok júní námu um 18,4 milljörðum króna. Bókunar- og verkefnastaða fyrir komandi mánuði er góð og er EBITDA spá fyrir árið í heild óbreytt eða 9,5 milljarðar króna," segir í fréttatilkynningu.



















