Landsnet tapaði 133 milljónum
Tap Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 133 milljónum fyrstu sex mánuði ársins samanborið við hagnað að fjárhæð 1.034 mkr. fyrir sama tímabil árið 2010.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 4.358 mkr. samanborið við 4.645 mkr. á sama tímabili fyrra árs og lækkar því um 287 mkr. á milli ára.
Verri afkoma á fyrri helmingi ársins 2011 í samanburði við fyrri helming fyrra árs stafar að mestu af breytingum í fjármagnsliðum og felst aðallega í hærri verðbólgu á fyrstu sex mánuðum ársins 2011 og meira gengistapi en á sama tímabil árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 3.292 mkr. á tímabilinu á móti 2.185 mkr. á sama tímabili ársins 2010. Hrein fjármagnsgjöld hækka því um 1.107 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2011 í samanburði við sama tímabil 2010.
Eiginfjárhlutfall í lok júní var 16,1% samanborið við 16,5% í lok ársins 2010. Eigið fé í lok tímabilsins nam 11.489 mkr. samanborið við 11.622 í lok árs 2010.
Heildareignir félagsins í lok júní námu 71.404 mkr. samanborið við 70.513 mkr. í lok árs 2010. Heildarskuldir námu 59.914 mkr. samanborið við 58.891 mkr. í lok árs 2010.
Í lok júní nam handbært fé 6.542 mkr. Handbært fé frá rekstri fyrstu sex mánuði ársins nam 2.453 mkr. samanborið við 3.048 mkr. á sama tímabili árið 2010, samkvæmt tilkynningu til kauphallarinnar.



















