Viðskipti
| AFP
| 12.8.2011
| 17:12
| Uppfært
18:12
Kýpur sett á athugunarlista
Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur sett Kýpur á athugunarlista með neikvæðum horfum en lánshæfiseinkunn ríkisins er BBB+.
Í tilkynningu frá S&P kemur fram að matsfyrirtækið telur fjárhagsstöðu ríkissjóðs ekki lengur ásættanlega.
Fyrir tveimur dögum tilkynnti matsfyrirtækið Fitch að það teldi að Kýpur þyrfti á neyðaraðstoð að halda frá Evrópusambandinu.
Meðal forsendna fyrir mati Fitch er að annar stjórnarflokkurinn, DIKO, hefur sagt sig frá stjórnarsamstarfinu. Því sé ríkisstjórnin í veikari stöðu en áður við að koma á þeim umbótum sem þörf er á.
Aftur á móti telur framkvæmdastjórn ESB ekki þörf á að veita Kýpur aðstoð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















