Viðskipti
| mbl
| 12.8.2011
| 21:00
| Uppfært
21:17
Morrisons alvara með Iceland
Svo virðist sem bresku smásölukeðjunni Morrisons sé full alvara með að bjóða í hlut Landsbankans í Iceland-keðjunni. Hefur Morrisons ráðið Credit Suisse sem ráðgjafa við að undirbúa tilboðið.
Til stendur að selja 67% í Iceland síðar á árinu en forstjóri Iceland, Malcolm Walker, sem á 27% hlut, er með forkaupsrétt á hlutnum. Á hann að hafa boðið 1 milljarð punda í hlut Landsbankans en því boði var hafnað.
Á vefnum the grocer kemur fram að Walker sé nú að undirbúa nýtt boð í Iceland og er gert ráð fyrir að fleiri eigi eftir að bítast um verslunarkeðjuna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















