Viðskipti
| mbl
| 16.8.2011
| 7:23
| Uppfært
14:29
Asda skoðar Iceland
Næst stærsta matvörukeðja Bretlands, Asda, er að skoða hvort taka eigi þátt í útboðinu á Iceland keðjunni. Landsbankinn stefnir að því að selja hlut sinn í Iceland, 67%, á árinu.
Forsvarsmenn Asda, sem er í eigu WalMart, sögðu í gær að þeir hefðu áhuga á að kaupa hluta verslana Iceland, en keðjan á og rekur 730 verslanir í Bretlandi. Forstjóri Asda, Andy Clarke, ýjaði hins vegar að því að ólíklegt væri að keðjan hefði áhuga á að bjóða í alla Iceland keðjuna þar sem verslanir Iceland væru einfaldlega of litlar. Þetta kemur fram á vefnum This is Money.
Asda hefur einungis áhuga á stærstu verslunum Iceland eða þeim sem eru yfir 5 þúsund fermetrar að stærð. Hins vegar eru flestar verslanir Iceland minni en 3 þúsund fermetrar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















