Þýskaland veldur vonbrigðum
Sérfræðingar sem DowJones fréttaveitan leitaði til höfðu spáð 0,4% hagvexti á öðrum ársfjórðungi.
Það er ljóst að það hefur dregið úr kraftinum í þýsku athafnalífi í ár, segir í tilkynningu frá hagstofunni.
Samkvæmt endurskoðuðum hagtölum var hagvöxturinn 1,3% í Þýskalandi á fyrsta ársfjórðungi en bráðabirgðatölur bentu til að hann hefði numið 1,5%.
Innflutningur jókst í Þýskalandi á öðrum ársfjórðungi umfram útflutning. Á sama tíma dró úr einkaneyslu og fjárfestingum í landinu. Verg landsframleiðsla jókst hins vegar um 2,8% á milli ára, það er á öðrum ársfjórðungi.
Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, mun í dag ræða við forseta Frakklands, Nicolas Sarkozy, á fundi í París. Hún sagði fyrr á árinu að útlit væri fyrir að hagvöxtur í Þýskalandi yrði svipaður í ár og í fyrra er hann var 3,6%.



















