Seðlabankinn hækkar vexti

Seðlabanki Íslands. stækka

Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana verða því 3,5%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,25%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 4,5% og daglánavextir 5,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá peningastefnunefnd bankans. Nánar verður fjallað um þessa ákvörðun bankans á fundi með fréttamönnum og greiningardeildum klukkan 10:30 í dag.

Á skjön við spár og þróun erlendis

Er hækkunin á skjön við spár helstu greiningardeilda á Íslandi en þær höfðu flestar spáð því að bankinn héldi vöxtum óbreyttum vegna þess óróa sem er á alþjóðlegum mörkuðum. Hins vegar hafði peningstefnunefndin og seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, ýjað að því að bankinn myndi hækka vexti sína nú. 

Fyrr í mánuðinum tilkynnti bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna að stýrivextir yrðu ekki hækkaðir í Bandaríkjunum næstu tvö árin. Þar eru stýrivextir 0-0,25%. Hvorki Englandsbanki og Seðlabanki Evrópu hækkuðu vexti sína fyrr í mánuðinum. 

Spár benda til meiri vaxtar innlendrar eftirspurnar

„Hækkun vaxta Seðlabankans er í samræmi við nýlegar yfirlýsingar peningastefnunefndar og markast af því að verðbólguhorfur til næstu tveggja ára hafa versnað enn frekar frá síðasta fundi nefndarinnar. Nýjustu hagtölur og uppfærð spá bankans sem birtist í Peningamálum í dag benda að auki til meiri vaxtar innlendrar eftirspurnar og atvinnu á þessu ári en búist var við í síðustu spá.

Á móti auknum vexti innlendrar eftirspurnar kemur að hræringar á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og vísbendingar um veikari hagvöxt í helstu iðnríkjum en búist var við gætu haft neikvæð áhrif á íslenskan þjóðarbúskap þegar frá líður. Hversu mikil þessi áhrif gætu orðið er afar erfitt að meta á þessari stundu. Aukinn kraftur í efnahagslífinu, sem birtist í uppfærðri spá bankans, felur þó í sér að lítil hætta er á að hófleg vaxtahækkun stöðvi efnahagsbatann, enda er mikilli lækkun skammtímaraunvaxta sem hefur átt sér stað undanfarna mánuði aðeins snúið við að litlum hluta," segir í frétt á vef Seðlabankans.

Verðbólga hefur aukist verulega undanfarna fimm mánuði. Tólf mánaða verðbólga mældist 5% í júlí og undirliggjandi verðbólga, skilgreind sem vísitala neysluverðs án áhrifa neysluskatta, sveiflukenndra matvæla, bensíns, opinberrar þjónustu og vaxtakostnaðar, mælist 3,3% og hefur aukist úr 1,2% í janúar.

Verðbólgumarkmið náist ekki fyrr en á seinnihluta ársins 2013

Aukin verðbólga skýrist m.a. af lágu gengi krónunnar og verðhækkunum húsnæðis og olíu. Umsamdar launahækkanir munu auka verðbólguna enn frekar á næstunni þrátt fyrir lítils háttar styrkingu gengis að undanförnu. Miðað við núverandi gengi krónunnar eru horfur á að verðbólga aukist fram á næsta ár og að verðbólgumarkmiðið náist ekki að nýju fyrr en á seinni hluta ársins 2013, segir í frétt Seðlabankans en verðbólgumarkmið eru 2,5% hér á landi.

Aukin hætta á að verðbólga festist í sessi

Þróun undanfarinna mánaða hefur aukið hættu á að hærri verðbólguvæntingar og veikt gengi krónunnar festi of mikla verðbólgu í sessi, sérstaklega þegar efnahagsbatinn færist í aukana. Í versta tilfelli gætu væntingar um aukna verðbólgu, neikvæðir raunvextir og lítill áhættuleiðréttur vaxtamunur við útlönd grafið enn frekar undan gengi krónunnar og valdið vítahring aukinnar verðbólgu og lækkandi gengis, þótt slakinn í þjóðarbúskapnum ætti í einhverjum mæli að vinna gegn slíkri þróun.

„Til þess að draga úr hættu á slíkri atburðarás er nauðsynlegt að sporna nú gegn aukinni verðbólgu og hugsanlegum þrýstingi á gengi krónunnar. Það kann að kalla á frekari hækkun vaxta. Ákvarðanir í peningamálum munu þó sem fyrr taka mið af nýlegri þróun og horfum.

Peningastefnunefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið," segir í frétt frá Seðlabanka Íslands.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir