Spá 3,8% aukningu í einkaneyslu
Seðlabanki Íslands spáir því að einkaneysla aukist um 3,8% í ár sem er um prósentu meiri vöxtur en búist var við í spá bankans í apríl. Þrátt fyrir að spáð sé meiri vexti í einkaneyslu á þessu ári er áætlað að hlutdeild einkaneyslu í landsframleiðslu verði enn mjög lág í sögulegu samhengi.
Spáð er í Peningamálum Seðlabankans að einkaneysla aukist um 2½% á ári á næstu tveimur árum sem er um ½ prósentu minni vöxtur hvort árið en spáð var í apríl.
Rúmlega 3% hagvöxtur á fyrsta fjórðungi þessa árs var talsvert meiri en spáð var í aprílhefti Peningamála Seðlabanka Íslands en þar var spáð 0,8% árshagvexti.
„Við fyrstu sýn kemur spáskekkjan að mestu fram í þjóðarútgjöldum þar sem mestu munar um birgðabreytingar en birgðasöfnun var óvenjumikil í fjórðungnum.
Birgðir í tölum Hagstofunnar eru útflutningsframleiðsla sem ekki hafði verið flutt úr landi auk birgða af innfluttum olíuvörum. Þetta skýrir einnig að miklu leyti ofmat útflutnings í aprílspánni.
Þegar tekið hefur verið tillit til þessa stendur helst eftir að samdráttur samneyslu var ofmetinn ásamt því að innflutningur var nokkru minni en spáð var. Á móti þessu vegur að fjárfesting var veikari en spáð var í apríl.
Eins og ævinlega þarf að hafa í huga að fyrstu tölur um fjárfestingu hafa tilhneigingu til að vanmeta fjárfestingarstigið," segir í Peningamálum Seðlabankans.
Einkaneysla jókst um 1,5% á fyrsta fjórðungi ársins og var það í samræmi við spá bankans frá apríl, en þar var gert ráð fyrir 1,3% vexti milli ára.
„Útlit er fyrir töluvert meiri vöxt á öðrum fjórðungi en áður var reiknað með. Líklegt er að áhrif tímabundinna þátta á borð við eingreiðslur í tengslum við kjarasamninga og sérstakar vaxtabætur séu sterkari en áður var ætlað. Þar að auki eru vísbendingar um að atvinna hafi aukist meira í fjórðungnum en fram kom í fyrri spá bankans en það eykur kaupmátt heimila.
Auður heimila eykst vegna verðhækkunar á fasteignamarkaði
Auður heimila hefur einnig hækkað meir en spáð var vegna kröftugri hækkunar á verði húsnæðis.
Kortavelta heimila, bæði í verslunum innanlands og erlendis, jókst um rúm 9% að raunvirði milli ára á öðrum ársfjórðungi. Svo virðist sem þessi veltuaukning hafi að mestu verið í innlendum verslunum, en t.d. má sjá verulega aukningu í raftækja- og húsgagnaverslun.
Í uppfærðri spá er reiknað með að einkaneysla hafi aukist um tæp 7% á öðrum ársfjórðungi frá sama tíma fyrra árs, sem svarar til rúmlega 2% aukningar milli fjórðunga að teknu tilliti til árstíðarsveiflu.
Þessi mikli kraftur einkaneyslu endurspeglar að einhverju leyti tímabundna þætti og ætla má að nokkuð dragi úr vextinum á seinni hluta ársins.
Einnig má gera ráð fyrir að vaxandi verðbólga muni draga úr kaupmáttaraukningu umsaminnar launahækkunar eftir því sem líður á árið," segir í Peningamálum Seðlabanka Íslands.



















