Vaxtahækkun kemur á óvart
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir ákvörðun Seðlabanka Íslands um að hækka vexti vera óskiljanlega og hafa komið á óvart þrátt fyrir yfirlýsingar Seðlabankans í vor um að vextir kynnu að verða hækkaðir.
„Vissulega er verðbólgan nokkurt áhyggjuefni en stærsta vandamálið okkar er hversu veikt hagkerfið er. Þessi vaxtahækkun vinnur beinlínis gegn viðsnúningi í hagkerfinu.
Í nágrannalöndum okkar eru seðlabankar að fara allt aðra leið en hér. Þar eru vextir mjög lágir þrátt fyrir að verðbólga sé talsvert yfir markmiði. Í Bretlandi eru stýrivextir t.d. 0,5% en verðbólga 4,4%. Öll áhersla er lögð á að koma hagkerfinu í gang en þannig má m.a. vinna gegn verðbólgunni því hún er mestu kostnaðardrifin eins og hjá okkur. Þetta eru mikil ótíðindi,“ segir Bjarni Már á vef Samtaka iðnaðarins.



















