Bréf Apple lækkuðu eftir afsögn Jobs
Gengi hlutabréfa bandaríska tölvuframleiðandans Apple lækkaði um rúm 5% og var 356,3 dalir eftir að fréttir bárust af því í gærkvöldi að Steve Jobs hefði sagt af sér sem forstjóri félagsins.
Apple tilkynnti um afsögn Jobs eftir að kauphöllinni á Wall Street var lokað í gærkvöldi og því var um var að ræða rafræn viðskipti. Því mun ekki koma í ljós hvernig markaðurinn almennt tekur tíðindunum fyrr en eftir hádegið í dag þegar kauphöllin verður opnuð að nýju.
Van Baker, sérfræðingur hjá Gartner, sagði að engin ástæða væri til að óttast þessar breytingar.
„Ég held að Apple muni ganga vel áfram," sagði Baker við AFP fréttastofuna. „Það starfar svo margt hæfileikaríkt fólk þarna og áhersla Steves á smáatriði er hluti af menningunni þar."
Jobs verður nú stjórnarformaður Apple og framleiðsluáætlunin er skýr, að mati Bakers. Búist er við að Apple kynni fimmtu kynslóð iPhone síma í september. Baker sagðist viss um, að fyrirtækið ynni nú að næstu gerð iPad spjaldtölva.
Engin ástæða var gefin fyrir því að Jobs sagði af sér en hann hefur ítrekað farið í leyfi af heilsufarsástæðum, gengist undir lifrarígræðslu og aðgerðir vegna krabbameins. Tim Cook, sem nú tekur við forstjórastarfinu, hefur verið staðgengill Jobs lengi og gegnt forstjórastarfi í veikindaleyfum hans.



















