Viðskipti
| mbl
| 25.8.2011
| 13:40
| Uppfært
14:05
Bréf Apple lækkuðu um 2%
Hlutabréf tölvuframleiðandans Apple lækkuðu um 2% þegar viðskipti hófust í kauphöllinni á Wall Street í dag.
Bréf félagsins lækkuðu um 5% í utanþingsviðskiptum í gærkvöldi eftir að Jobs tilkynnti að hann hefði sagt af sér sem forstjóri Apple. Sérfræðingar hafa hins vegar bent á að búast hafi mátt við afsögn Jobs á hverri stundu en hann hefur verið í veikindaleyfi frá því í janúar. Því sé engin ástæða fyrir fjárfesta að óttast þessar breytingar.
Richard Gardner, sérfræðingur hjá Citigroup, mælti með því, að fjárfestar keyptu bréf Apple ef gengi þeirra lækkaði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















