Viðskipti
| mbl
| 25.8.2011
| 12:03
| Uppfært
14:06
Krónan gefur eftir
Gengi krónunnar gagnvart evru hefur lækkað nokkuð síðustu vikuna. Segir Greining Íslandsbanka, að svo virðist sem styrking krónunnar fyrr í mánuðinum sé að ganga til baka.
Gengi evrunnar var 164,70 krónur nú um hádegisbil en á sama tíma í síðustu viku fór gengið niður í 163,6 krónur.
Krónan hefur einnig lækkað gagnvart Bandaríkjadals. Er gengi dals skráð 114 krónur en um miðja síðustu viku var gengi krónunnar um 113 krónur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















