83 kaupsamningum þinglýst
Alls var 83 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 19. ágúst til og með 25. ágúst. Þar af voru 60 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og átta samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.685 milljónir króna og meðalupphæð á samning 32,4 milljónir króna.
Á sama tíma var fimm kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þeir voru allir um eignir í fjölbýli. Heildarveltan var 58 milljónir króna og meðalupphæð á samning 11,7 milljónir króna.
Á sama tíma var átta kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru fimm samningar um eignir í fjölbýli og þrír samningar um sérbýli. Heildarveltan var 302 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,8 milljónir króna. Á sama tíma var tveimur kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var einn samningur um sérbýli og einn um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 24 milljónir króna og meðalupphæð á samning 12,1 milljón króna, að því er segir á vef Þjóðskrár Íslands.



















