Viðskipti
| mbl
| 26.8.2011
| 23:29
| Uppfært
27.8.2011
16:08
Cook fær milljón hluti í Apple
Tim Cook, sem var ráðinn forstjóri tölvuframleiðandans Apple í vikunni, hefur fengið fyrirheit um 1 milljón hluta í fyrirtækinu í kaupauka. Eru hlutabréfin yfir 383 milljóna dala virði, nærri 44 milljarða króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Apple til bandaríska fjármálaeftirlitsins.
Cook fær hlutabréfin í tveimur skömmtum, fyrri helminginn árið 2016 og þann síðari árið 2021, svo framarlega sem hann verður enn við störf hjá Apple.
Cook, sem er fimmtugur, tók við forstjórastarfinu á miðvikudag eftir að Steve Jobs sagði því lausu. Jobs hefur verið í veikindaleyfi frá því í janúar en verður nú stjórnarformaður Apple.
Gengi hlutabréfa Apple hækkaði um 2,64% í kauphöllinni á Wall Street í dag og er 383,58 dalir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















