Markmið áætlunarinnar náðust

Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.
Höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir, að íslensk stjórnvöld hafi framfylgt efnahagsáætlun þeirri, sem gerð var fyrir Ísland, af krafti og því sé áætluninni lokið. Markmiðin með áætluninni hafi náðst og Ísland sé á réttri leið út úr erfiðleikunum.

Stjórn sjóðsins samþykkti sjöttu endurskoðun efnahagsáætlunarinnar í gær og getur Ísland þá fengið lokaskammtinn af láninu, sem samið var um í nóvember 2008. Um er að ræða jafnvirði 51 milljarðs króna en alls nemur lánafyrirgreiðsla sjóðsins um 257 milljörðum króna. Að auki  kemur lántökuréttur frá Norðurlöndunum og Póllandi í tengslum við áætlunina, samtals 150 milljarðar króna.

Í tilkynningu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum segir, að starfsmenn sjóðsins og íslensk stjórnvöld hafi samþykkt að draga úr kröfum um niðurskurð ríkisútgjalda í ljósi þess að framkvæmd efnahagsáætlunarinnar hafi gengið vel. Mikilvægt sé hins vegar að þessari breyttu áætlun sé framfylgt.

Þá segir AGS að Seðlabankinn hafi með réttu hækkað stýrivexti í ágúst vegna aukinnar verðbólguhættu. Þá sé verið að taka fyrstu skref í átt til þess að gjaldeyrishöftum verði aflétt. Kraftur hafi loks verið settur í aðgerðir við endurskipuleggja skuldir fyrirtækja og endurfjármögnun kjarna bankakerfisins sé lokið. 

Fleira er talið til en AGS segir, að ýmis ljón séu enn í veginum. Þótt spáð sé hagvexti á þessu ári sé atvinnuleysi enn mikið og verðbólga fari vaxandi, m.a. vegna hás hráefnisverðs. Nauðsynlegt sé að fylgja áætlun um endurreisn fast eftir. 

Vefur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK