RARIK tapaði 91 milljón
mbl.is/Brynjar Gauti
Tap RARIKS nam 91 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2011 var 905 milljónir króna.
Rekstrarafkoman var betri en á fyrri hluta ársins 2010 og hækkuðu rekstrartekjur um rúmlega 6,6% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um tæplega 4,9% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 981 milljón króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður jákvæðir um 248 milljónir króna. Þessi breyting stafar fyrst og fremst af veikingu krónunnar og verðbólgu sem var meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum.
Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru neikvæð um 30 milljónir króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.532 milljónir króna eða um 31% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.356 milljónir eða 29% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.531 milljón króna samanborið við 1.571 milljón króna á sama tímabili árið 2010.



















