Bílasölur til sölu
Selja á Ingvar Helgason og Bifreiðar og landbúnaðarvélar mbl.is/Sverrir Vilhelmsson
Miðengi ehf. (dótturfélag Íslandsbanka), SP Fjármögnun hf. og Lýsing hf. hafa falið fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 100% hlut í Eignarhaldsfélaginu BLIH ehf., móðurfélagi Ingvars Helgasonar ehf. (IH) og Bifreiða og landbúnaðarvéla ehf. (B&L). Fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna lauk fyrr á þessu ári þegar nýir hluthafar komu að þeim.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti eða búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 m.kr. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, m.a. í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.



















