Viðskipti
| mbl
| 31.8.2011
| 13:24
| Uppfært
18:20
HS Orka greiðir sekt
Fjármálaeftirlitið og HS Orka hafa gert með sér sátt um að HS Orka greiði 1,2 milljónir króna vegna brots á lögum um verðbréfaviðskipti.
HS Orka, sem er útgefandi skráðra skuldabréfa, gekkst við því að hafa brotið gegn lögunum með því að hafa ekki skilað listum yfir fruminnherja og aðila fjárhagslega tengda fruminnherjum til Fjármálaeftirlitsins innan tilskilins frests þrátt fyrir áminningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















