Viðskipti
| mbl
| 31.8.2011
| 7:58
| Uppfært
10:45
Hagvöxtur í Danmörku á ný
Hagvöxtur mælist nú í Danmörku á ný en verg landsframleiðsla jókst um 1% á öðrum ársfjórðungi miðað við fjórðunginn á undan.
Þá hafa tölur um landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi verið endurskoðaðar og sýna nú að verg landsframleiðsla jókst einnig um 1% á fyrsta fjórðungi samanborið við síðasta fjórðung ársins 2010.
Tölur, sem danska hagstofan hafði áður birt, bentu til þess að landsframleiðslan hefði dregist saman á fjórða ársfjórðungi 2010 og fyrsta fjórðungi ársins 2011 og því væri hægt að tala um samdráttarskeið samkvæmt skilgreiningu hagfræðinga um samdrátt tvo ársfjórðunga í röð. Nú hefur annað komið í ljós.
Hagstofan segir, að fjárfesting hafi aukist sem og útflutningur en einkaneysla dróst lítillega saman.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















