Evran veikist gagnvart dal
Evran hefur veikst þó nokkuð á síðustu dögum. Við lokun markaða á mánudag kostaði evran rúma 1,45 Bandaríkjadali en í dag kostar hún 1,427 dali. Er evran þar með nálega 2% veikari nú gagnvart dal en hún var í byrjun vikunnar.
Ekki er hægt að setja þetta í samband við einhverjar nýjar tölur eða annað sem gæti komið af stað þessari veikingarhrinu, og er líkt og undanfarið einna helst bent á ótta við skuldavandræði evruríkja, segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Nú í morgun stóð 5 ára skuldatryggingarálag gríska ríkisins í 2.267 punktum samkvæmt Bloomberg-gagnaveitunni og er þar með langhæsta áhættuálag af öllum ríkjum heims sem seldar eru skuldatryggingar fyrir. Álagið á portúgalska ríkið (925 punktar) var hið þriðja hæsta nú í morgun, og álagið á hið írska (771 punktar) fimmta hæsta. Jafnframt voru Ítalía og Spánn einnig ofarlega í þessum samanburði og var álagið á hið fyrrnefnda 368 punktar og hið síðarnefnda 363 punktar. Þess má geta að þann 1. september fyrir ári síðan var álagið á Grikkland 896 punktar, Írland 333 punktar, Portúgal 326 punktar, Spán 220 punktar og svo Ítalíu 212 punktar, og sjá má að um gríðarlega hækkun er að ræða. Þess má geta að á sama tíma í fyrra var skuldatryggingarálagið á Ísland 315 punktar en stendur nú í um 260 punktum,“ segir í Morgunkorni.



















