Viðskipti
| mbl
| 2.9.2011
| 10:40
| Uppfært
16:31
Sparisjóður Norðfjarðar til sölu
Stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar hefur fyrir hönd stofnfjáreigenda ráðið H.F. Verðbréf sem ráðgjafa við sölu á öllu stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar.
Fundur stofnfjáreigenda sjóðsins, sem haldinn var 18. ágúst, ákvað að auglýsa allt stofnféð í opnu söluferli. Auglýsing þar sem tilkynnt verður nánar um söluferlið verður birt á næstu dögum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















