Viðskipti
| mbl
| 6.9.2011
| 17:23
| Uppfært
21:40
Flutti 250 þúsund farþega
Icelandair flutti tæplega 250 þúsund farþega í ágúst og hefur félagið aldrei áður flutt jafnmarga farþega í ágústmánuði. Fjölgaði farþegum um 18% milli ára.
Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair Group, að sætanýtingin var 85,3%. Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum félagsins en þó mest á markaðinum frá Íslandi þar sem aukningin nam 25%.
Flugfélag Íslands flutti 38 þúsund farþega í ágúst og nam aukningin á milli ára 4%. Sætanýting var 74,9% og batnaði um 4,1 prósentu.
Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 3% á milli ára vegna viðhaldsskoðana hjá Icelandair Cargo. Frakt jókst um 10% og herbergjanýting Icelandair Hotels var 82,3% og lækkaði lítillega á milli ára.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















